Dans- og fimleikahús
Staðsetning dans- og fimleikahúss við Gerðuberg í Efra-Breiðholti, styrkir menningar-, mennta- og íþróttamiðju hverfisins við borgargötuna Austurberg.
Á svæðinu er þegar til staðar menningarmiðstöðin Gerðuberg, frístundamiðstöðin Miðberg, tónlistarskóli, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti og sundlaug, ásamt fleiri íþróttamannvirkjum. Þar er einnig hverfistorgið Markúsartorg sem áformað er að styrkja enn frekar. Jafnframt á Breiðholtsleggur Borgarlínunnar að fara þarna um í framtíðinni.
Allar tegundir af dansi fái að njóta sín
Horft er til þess að allar tegundir af dansi fái að njóta sín í dans- og fimleikahúsinu, sem á að þjóna bæði íbúum í Breiðholti og borginni allri. Með áherslu á fjölbreytta dansiðkun getur slíkt hús styrkt enn frekar hið fjölþjóðlega samfélag í borginni og opnað alls kyns ný samskipti og samskiptamöguleika.
Fjölnota-, fimleika- og danssalir
Miðað er við að dans- og fimleikahúsið verði 2-3 hæðir og 2-3.000 m² með fjölnotasal, fimleika- og karatesal, minni danssal, búningsaðstöðu, geymslurými og anddyri.
Upphaflega var horft til þess að finna stað fyrir fimleikahús í Efra-Breiðholti, í samræmi við samning borgarinnar og ÍR frá árinu 2017. Strax þá voru áformin tengd við dansinn og skyldi við þarfagreiningu verkefnisins horfa til starfsemi og þarfa dansskóla.
Árið 2020 var svo samþykkt í borgarráði að fela umhverfis- og skipulagssviði að koma með tillögu að staðsetningu fimleika- og danshúss í Efra-Breiðholti, sem er nú orðið að tillögu í hverfisskipulaginu, í nánum tengslum við hverfiskjarnann við Gerðuberg.

