Hverfisskipulag
Breiðholts
Kæru Breiðhyltingar!
Nýtt hverfisskipulag fyrir öll hverfi Breiðholts er nú komið í formlegt og lögbundið kynningar- og samþykktarferli.
Á kynningartímanum er öllum heimilt að gera athugasemdir við skipulagið. Að honum loknum taka skipulagsyfirvöld athugasemdir sem borist hafa til formlegrar umfjöllunar og meta hvort gera skuli breytingar á auglýstri skipulagstillögu.
Tillagan er svo send til samþykktar hjá Skipulagsstofnun og til auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda.
Spennandi tímar í Breiðholti–ávarp
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur.
Hverfisskipulag Breiðholts–tillögur til kynningar
Ævar Harðarson, deildarstjóri Hverfisskipulags Reykjavíkur.
Hverfisskipulag Breiðholts–kynning skipulagsráðgjafa
Ólöf Kristjánsdóttir, ráðgjafi um hverfisskipulag Breiðholts.
Kynningarfundur í Gerðubergi
Tillögur hverfisskipulags Breiðholts voru kynntar á fundi í Gerðubergi, fimmtudaginn 24. júní 2021. Sara Björg Sigurðardóttir, formaður íbúaráðs Breiðholts, stýrði fundinum sem var einnig streymt á netinu. Á sjötta tug gesta mættu á fundinn og vel á annað hundrað fylgdist með streyminu. Hér til hliðar má sjá upptöku frá fundinum.
Dagskrá fundarins;
-
Helstu áherslur borgarinnar, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
-
Samráð í Breiðholti 2015 – 2020, Ævar Harðarson deildarstjóri
-
Helstu tillögur hverfisskipulags, Ólöf Kristjánsdóttir, Óskar Örn Gunnarsson og Richard Briem hverfisskipulagsráðgjafar
-
Arnarbakki – tillaga að deiliskipulagi, Hildur Gunnarsdóttir verkefnisstjóri hjá skipulagsfulltrúa
-
Völvufell – tillaga að deiliskipulagi, Kristján Örn Kjartansson arkitekt
-
Vetrargarður – hugmyndir um uppbyggingu, Atli Steinn Árnason framkvæmdarstjóri
-
Fyrirspurnir og svör
Hverfisskipulag Breiðholts er í umsagnarferli til og með 31. ágúst 2021 og geta þeir sem vilja sent inn ábendingar og athugasemdir á netfangið skipulag@reykjavik.is, eða skilað þeim inn skriflega til skipulagsfulltrúa, Borgartúni 12–14, 105 Reykjavík. Horft verður til þeirra í lokafrágangi hverfisskipulagsins.
Borgin hefur hag af því að hverfisskipulag verði að veruleika þar sem skýr sýn til langs tíma fyrir öll hverfi í borginni er borgarsamfélaginu í hag.
Beint streymi frá fundinum
Fjárfestingar í Breiðholti
Á undanförnum árum hafa ýmsar framkvæmdir átt sér stað í Breiðholti. Ekki bara með mikilli og farsælli uppbyggingu íþróttamannvirkja á svæði ÍR í Mjódd heldur líka með beinum uppkaupum á gömlum hverfiskjörnum eins og á Arnarbakka og í Völvufelli.
Í Völvufelli mun nýr leikskóli líta dagsins ljós á grunni hverfisskipulagsins og í báðum kjörnunum verður þróuð starfsemi sem eykur lífsgæði íbúa í hverfinu.
Til stendur að fjárfesta áfram í Breiðholti eins og með endurbættri skíðaaðstöðu í Vetrargarði í Seljahverfi og sérstöku Dans- og fimleikahúsi Reykjavíkur í Efra-Breiðholti sem mun þjónusta börnin í Breiðholti til langrar framtíðar.
Uppbyggingu Fjölbrautaskólans í Breiðholti er hluti af hverfisskipulagsvinnu en skrifað var í vor undir samkomulag við menntamálaráðherra um framkvæmd upp á milljarð fyrir list- og iðngreinar við skólann.
Útfærsla hverfisskipulagsins fyrir Neðra-Breiðholt, Efra-Breiðholt og Seljahverfi byggir á vandaðri greiningu og góðu samráði sem hefur skilað okkur nýjum og spennandi hugmyndum og verkefnum sem eru að komast á framkvæmdastig.
