Styrking
hverfiskjarna
Mikilvægur þáttur í hverfisskipulagi Breiðholts er að styrkja hverfiskjarna og efla nærþjónustu í göngufæri fyrir íbúa. Það hefur jákvæð áhrif á mannlífið og hverfin verða líflegri og eftirsóknarverðari búsetukostur
Hverfin þrjú í Breiðholti eru almennt vel sett hvað varðar aðgengi að fjölbreyttri verslun og þjónustu, m.a. vegna nálægðar við Mjóddina. Þó er talsvert minni nærþjónusta innan Seljahverfis en innan Efra- og Neðra-Breiðholts.
Í Mjódd er stefnt að frekari uppbyggingu með atvinnuhúsnæði og nýjum íbúðum sem mun auka verslun og þjónustu enn frekar. Um er að ræða umfangsmiklar breytingar sem ekki verða útfærðar í hverfisskipulagi heldur verður gert sérstakt deiliskipulag fyrir þróunarsvæði í Mjódd.
Breiðholt er almennt vel sett með aðgengi að verslun og þjónustu vegna nálægðar við Mjódd. Minni nærþjónusta er í Seljahverfi en í Efra- og Neðra-Breiðholti
Í samráðsferli hverfisskipulags hafa hverfiskjarnarnir í öllum hverfum gjarnan verið suðupottur hugmynda og athugasemda frá íbúum. Óskir hafa komið fram um margvíslega verslun og þjónustu sem fólk vill hafa í þægilegu göngufæri. Að sama skapi var víða ákall eftir endurbótum á húsnæði og umhverfi sumra kjarnanna sem mega muna fífil sinn fegurri.
Neðra-Breiðholt
Nærþjónusta í Neðra-Breiðholti er í kjarnanum við Arnarbakka. Í kynningu á vinnutillögum hverfisskipulags sumarið 2020 voru kynntar hugmyndir um að styrkja kjarnann með því að fjarlægja gömlu húsin og reisa nýjar byggingar með verslun og þjónustu á hluta jarðhæða og námsmannaíbúðum á efri hæðum. Bæta á allt umhverfi kjarnans og búa til hverfistorg sem tengist við borgargötu hverfisins. Nýju byggingarnar í hverfiskjarnanum verða alls um 12.000 m².
Nýbyggingar við Arnarbakka og bætt umhverfi og hverfistorg mun styrkja hverfiskjarnann
Arnarbakki – tillögur að breytingum 2020 og 2021
Til vinstri eru hugmyndir frá ágúst 2020 um uppbyggingu á og í kringum hverfiskjarnann við Arnarbakka. Til hægri eru nýjar tillögur að skipulagi svæðisins sem gerðar voru í kjölfar athugasemda sem komu fram í hverfisskipulagskynningunni sumarið 2020. Myndir: Basalt arkitektar.
Nýbyggingar aðlagaðar að byggðinni
Á kynningartímanum sumarið 2020 bárust allnokkrar athugasemdir við Arnarbakkatillögurnar, sem flestar tengdust hæð fyrirhugaðra húsa og þakformi og áformum um byggingu fjölnotahúss á Bakkatúni. Í uppfærðri tillögu að skipulagi svæðisins hefur verið tekið tillit til þessara athugasemda. Fallið hefur verið frá byggingu fjölnotahúss á Bakkatúni og hugmyndum um matjurtagarða norðan við kjarnann. Þá hefur hæð bygginganna og þakform verið aðlagað betur að byggðinni sem fyrir er.
Arnarbakki – nýtt útlit á nýjum byggingum
Horft í átt að nýju hverfiskjarnahúsunum til vinstri. Útivistarsvæði og gönguleiðir á svokölluðu Bakkatúni, austan við hverfiskjarnann.
Myndir: Basalt arkitektar.
Hverfiskjarni við Arnarbakka−kynning skipulagsráðgjafa
Anna Björg Sigurðardóttir, arkitekt FAÍ Basalt arkitektar.
Seljahverfi
Þéttleiki byggðarinnar í Seljahverfi er mun minni en í öðrum hverfum Breiðholtsins og verslun og þjónusta ekki í þægilegu göngufæri fyrir stóran hluta íbúa. Tvær matvöruverslanir eru í austurjaðri hverfisins en enginn eiginlegur hverfiskjarni er miðlægt í Seljahverfi.
Áhersla er því lögð á að byggja upp sterka hverfismiðju við Rangársel og Hólmasel. Í kynningu á vinnutillögum hverfisskipulags sumarið 2020 voru kynntar hugmyndir um uppbyggingu meðfram Rangárseli og Hólmaseli með áherslu á verslun og þjónustu á jarðhæðum, íbúðir á efri hæðum og góð tengsl við opin svæði í kring.
Áhersla er lögð á að byggja upp hverfismiðju í Seljahverfi við Rangársel og Hólmasel
Seljahverfi
Núverandi staða við Rangársel og Hólmasel. Ákveðið hefur verið að svæðið verði sérstakt þróunarsvæði til að byggja það upp sem hverfismiðju Seljahverfisins.
Mynd: Reykjavíkurborg
Rangársel-Hólmasel verður þróunarsvæði
Nokkrar athugasemdir bárust á kynningartíma vinnutillagna sumarið 2020 við áform um uppbyggingu hverfismiðju við Rangársel. Sneru þær m.a. að áhyggjum af því að umferð um svæðið myndi aukast, að gengið væri á opin svæði og að starfsemi myndi ekki þrífast. Þá þótti sumum að ítarlegra samráð þyrfti að hafa við íbúa um breytingar á svæðinu.
Allar athugasemdir sem bárust voru sendar skipulagsráðgjöfum til efnislegrar skoðunar. Í framhaldinu hefur verið ákveðið að gera umrætt svæði að sérstöku þróunarsvæði. Það þýðir að í hverfisskipulagi eru að svo stöddu ekki gefnar heimildir fyrir uppbyggingu svæðisins en gert ráð fyrir að tillögur verði þróaðar í sérstöku deiliskipulagi á næstu misserum. Með því gefst meiri tími til að þróa hugmyndirnar í samráði við hagsmunaaðila og íbúa og í takt við áherslur aðalskipulags Reykjavíkur.
Í hverfisskipulagi er lýst áherslum fyrir deiliskipulagsvinnu svæðisins og gert ráð fyrir að hugað verði að eftirfarandi þáttum:
– Borgargata við Rangársel og Hólasel með hverfistorgi, grenndarstöð, deilibílum og rafhleðslustöð.
– Allt að 100 íbúðir, aðallega á efri hæðum.
– Atvinnustarfsemi í hluta húsnæðis.
– Þjónusta, s.s. kaffihús og verslun.
– Aðstaða fyrir samfélagsþjónustu bætt, s.s. félagsmiðstöð fyrir alla.
– Skátar hafa óskað eftir húsnæði á svæðinu.
Þróunarsvæðið við Rangársel
Rangársel-Hólmasel er nú skilgreint sem þróunarsvæði og hverfiskjarni í hverfisskipulagi, sjá mynd til vinstri. Svæðið er um 47 þúsund m² að stærð og teikningin til hægri sýnir hvernig uppbygging á því gæti mögulega orðið.
Myndir: Reykjavíkurborg og Jakob Jakobsson arkitekt.
Efra-Breiðholt
Í Efra-Breiðholti eru tveir meginkjarnar fyrir nærþjónustu, Fellagarðar við Eddufell og Hólagarður. Segja má að miðja hverfisins sé hins vegar við Gerðuberg-Hraunberg og Austurberg þar sem tengjast margar af helstu þjónustustofnunum hverfisins; Menningarhúsið Gerðuberg, bókasafn, sundlaug, heilsugæslustöð, frístundamiðstöð, framhaldsskóli o.fl., í bland við verslun og aðra þjónustu.
Þegar vinnutillögur hverfisskipulags voru kynntar sumarið 2020 voru kynntar hugmyndir um uppbyggingu í tengslum við þessa þrjá hverfiskjarna.
Við Gerðuberg og Austurberg er miðja Efra-Breiðholts og borgarhlutans í heild sinni
Efra-Breiðholt
Núverandi staða við Austurberg, sem hugmyndir eru um að styrkja sem hverfiskjarna og miðju Breiðholtsins.
Mynd: Reykjavíkurborg.
Gerðuberg-Austurberg
Í tillögum hverfisskipulags er enn stefnt að því að styrkja þessa miðju hverfisins og Breiðholtsins í heild sinni, með auknu framboði á atvinnu- og íbúðarhúsnæði og auka þannig jafnvægi í fjölda íbúða og atvinnutækifæra. Fjölbreyttar skoðanir á hugmyndunum bárust frá íbúum þegar hugmyndirnar voru fyrst kynntar sumarið 2020.
Í grófum dráttum er lagt til að landnýting á svæðinu verði bætt með því að heimila nýbyggingar og viðbyggingar við eldra húsnæði meðfram borgargötunni Austurbergi og við Gerðuberg og Hraunberg. Gert er ráð fyrir að íbúðum geti fjölgað talsvert í nýbyggingum og viðbyggingum á lóðum fjölbýlishúsa við Austurberg og að næst verslunarkjarnanum við Hraunberg og Gerðuberg verði atvinnurými á jarðhæðum en íbúðir á efri hæðum. Almenningsrými og torgsvæði verða hönnuð og endurskilgreind samhliða uppbyggingunni og í tengslum við endurhönnun borgargötunnar við Austurberg.
Gert er ráð fyrir að við Gerðuberg verði dans- og fimleikaús, sem verði miðstöð fyrir dans og aðrar tengdar greinar í Reykjavík, sjá nánar hér.
Gerðuberg-Austurberg
Hér er sýnt hvernig auka mætti framboð á bæði íbúðar- og atvinnuhúsnæði til að styrkja þessa miðju Efra-Breiðholtsins og hverfiskjarnann þar. Byggingar sem eru á svæðinu eru hvítar en viðbyggingar og nýjar byggingar eru í ljósrauðum lit.
Mynd: Jakob Jakobsson arkitekt
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Á fyrri stigum voru settar fram hugmyndir um að Fjölbrautaskólinn í Breiðholti myndi færa starfsemi sína af lóðinni við Hraunberg 8 og fengi í staðinn auknar heimildir til bygginga á lóð sinni við Austurberg. Í kjölfar viðræðna við menntamálaráðuneyti, skólayfirvöld FB og Framkvæmdasýslu ríkisins hefur verið ákveðið að byggja áfram upp aðstöðu fyrir skólann samkvæmt eldri skipulagsheimildum við Hraunberg 8. Auk þess fær skólinn auknar heimildir til að byggja á núverandi bílastæði á lóð sinni við Austurberg og mun þá bílastæðum verða komið fyrir í kjallara nýbyggingar.
Lóð Fjölbrautaskólans í Breiðholti
Myndin til vinstri sýnir vinnutillögur sem kynntar voru sumarið 2020. Myndin til hægri sýnir tillögur sem voru samþykktar vorið 2021 og heimila m.a. að reisa tvær skemmur neðan við skemmuna efst til hægri á myndinni.
Myndir: Jakob Jakobsson arkitekt.
Eddufell-Völvufell
Við Eddufell og Völvufell er áformað að fara í umfangsmikla endurnýjun. Tillögurnar hafa tekið nokkrum breytingum í kjölfar athugasemda við vinnutillögurnar síðasta sumar.
Eldri byggingar munu víkja að hluta og nýtt húsnæði verða reist, m.a. fyrir sameinaðan leikskóla Fellahverfis, stúdentagarða og íbúðir í raðhúsum syðst á svæðinu. Áfram verður verslun og þjónusta við Fellagarða og heimildir fyrir íbúðum á efri hæðum verslana.
Umfangsmikil endurnýjun er fyrirhuguð við Eddufell og Völvufell þar sem eldri byggingar víkja að hluta og nýtt húsnæði verður reist
Eddufell-Völvufell
Til vinstri eru tillögurnar sem kynntar voru í ágúst 2020. Hægra megin eru nýju tillögurnar sem gerðar voru í kjölfar samráðs við íbúa.
Myndir: Krads arkitektar.
Eddufell-Völvufell
Myndin til vinstri sýnir fyrirhugað leikskólasvæði og myndin til hægri sýnir fyrirhugaðar byggingar við Drafnarfell.
Myndir: Krads arkitektar.
Hverfiskjarni við Völvufell−kynning skipulagsráðgjafa
Kristján Örn Kjartansson, arkitekt FAÍ Krads arkitektar.
Hólagarður
Á fyrri stigum skipulagsvinnunnar voru kynntar hugmyndir um viðbyggingar og ofanábyggingar við Hólagarð, allt að 12.000 m² fyrir íbúðir og verslun og þjónustu.
Í tillögum hverfisskipulags nú hefur Hólagarður, ásamt aðliggjandi leikskólalóðum og óbyggðu svæði þar austur af, verið skilgreindur sem þróunarsvæði. Það þýðir að í hverfisskipulagi eru að svo stöddu ekki gefnar heimildir fyrir uppbyggingu svæðisins en gert ráð fyrir að tillögur verði þróaðar í sérstöku deiliskipulagi á næstu misserum. Með því gefst betra tækifæri til að þróa hugmyndir fyrir svæðið í samráði við hagsmunaaðila og íbúa og í takt við þær áherslur sem hverfisskipulag og aðalskipulag Reykjavíkur setja.
Hólagarður
Núverandi staða við Hólagarð.
Mynd: Reykjavíkurborg.
Í hverfisskipulagi er lýst áherslum fyrir deiliskipulagsvinnu svæðisins og gert ráð fyrir að hugað verði að eftirfarandi þáttum:
- – Verslun og þjónusta verði áfram á jarðhæðum við Hólagarð en íbúðir og atvinnuhúsnæði heimilað í ofaná- eða nýbyggingum.
– Hæðafjöldi bygginga við verslunarkjarnann verði 3-5 hæðir.
- – Bílageymslu verði komið fyrir neðanjarðar og nýtt hverfistorg í tengslum við verslunarkjarna hannað á þaki geymslunnar.















